I belive in you
They ask me how I feel
And if my love is real
And how I know I'll make it through.
And they, they look at me and frown,
They'd like to drive me from this town,
They don't want me around
'Cause I believe in you.
They show me to the door,
They say don't come back no more
'Cause I don't be like they'd like me to,
And I walk out on my own
A thousand miles from home
But I don't feel alone
'Cause I believe in you.
I believe in you even through the tears and the laughter,
I believe in you even though we be apart.
I believe in you even on the morning after.
Oh, when the dawn is nearing
Oh, when the night is disappearing
Oh, this feeling is still here in my heart.
Don't let me drift too far,
Keep me where you are
Where I will always be renewed.
And that which you've given me today
Is worth more than I could pay
And no matter what they say
I believe in you.
I believe in you when winter turn to summer,
I believe in you when white turn to black,
I believe in you even though I be outnumbered.
Oh, though the earth may shake me
Oh, though my friends forsake me
Oh, even that couldn't make me go back.
Don't let me change my heart,
Keep me set apart
From all the plans they do pursue.
And I, I don't mind the pain
Don't mind the driving rain
I know I will sustain
'Cause I believe in you
15 desember 2004
22 september 2004
Dagar sem líður milli hugsana,
dagar sem líða milli hreyfinga.
Dagar sem hverfa í mistri,
dagar sem líða brott í myrkri.
Bíðum kyrrðar,
bíðum hljóðs.
Einangrun sem brestur,
hurð sem opnast.
06 júní 2004
Flugmaðurinn
Hnútur í maga,
ég finn ennþá lyktina.
Titringur í hendi,
ég heyri ennþá röddina þína.
Tannburstinn enn í glasinu,
aðeins notaður einu sinni.
Handklæðið enn á ofninum,
aðeins notað einu sinni.
Lyktin af þér á sænginni,
sms-in þín í símanum mínum.
Orðin sem þú sagðir,
þau voru svo ljúf.
Ég er með hnútinn í maganum,
því ég veit að þetta endist ekki mánuðinn.
Brátt flytur þú út.
Ég heyri í flugvél,
ert þetta þú?
Eru bara tveir dagar síðan þú varst hérna í rúminu hjá mér?
25 apríl 2004
Eitt símtal
Stóð fyrir framan ákvörðun,
hjartað sló hraðar en allt.
Hélt ég gæti breytt tímanum,
trúað öllum þínum fögru orðum.
Eitt símtal breytti rós í mold,
afhjúpaði lygi sem var sárari en hún átti að verða.
Fékk viku að átta mig,
einn morgun að fatta hvað var,
einn mann að segja mér sannleikann og hvaðan kæmi.
Eitt símtal til að breyta öllu.
Allt sem hefði getað orðið,
varð ekki.
Allt sem ég var á leið að trúa,
breyttist.
Það var lygi,
sem læddist á undraverðan hátt
aftan að.
Hvað væri að gerast núna,
ef ekki væri fyrir þetta símtal?
Hvað hefðir þú gert,
ef þú hefðir verið ég?
21 mars 2004
Á björgum lífs míns ég stend,
leita sjóndeildarhringsins.
Búnað látað stjórn of lengi,
snúast of oft.
Tárin renna,
þrýstingurinn eykst,
ekkert gerist.
Þú ferð ekki,
þrátt fyrir bænir.
Búnað elska of lengi,
búnað horfa of oft.
Munt sjá það sem ég sé fyrr en síðar,
þykist sjá það nú þegar,
en ert blindari en ég.
Heyrir minna en ég,
ert veikari en ég.
Elska þig meira en þú áttar þig á,
mun elska þig lengur en þú munt vita.
Mun minnast stundanna góðu oftar en þú munt muna,
Mun heyra hlátrana fyrr en þú munt minnast þeirra,
mun minnast sólarinnar á sama tíma og þú munt minnast hatursins og reiðarinnar.
16 nóvember 2003
Í átt að ókominni tíð horfi,
í leit að ljósi,
í leit að framtíð.
Skima eftir leiðinni,
sem mér er ætlað að fara,
leita eftir stígnum,
sem ég á eftir að laga.
Ég finn mér stein eftir stein,
sem ég mun leggja í stíginn.
Steinar sem munu bera fætur mína
rétta leið.
